Karastaflari fyrir full kör

Karastaflari fyrir full kör

Upplýsingar

Karastaflari fyrir 660 og 460 L plastkör (botnmál 105x124cm). Tækið er hannað með það í huga að vera hluti af karakerfi. Getur staflað upp eða tekið niður stæður. Vinnur stæðuna neðan frá, lyftir öllu nema neðsta karinu og hleypir því áfram í afstöflun og í uppstöflun þá lyftir tækið upp karinu/körunum og bætir við kari undir. Staflarinn afkastar allt að 80 körum á klst. Hámarks lyftigeta er 750kg. Karastaflarinn er alsjálfvirkur, með góð afköst og fína skilvirkni. Lágur viðhaldskostnaður ásamt vinnusparnaði og betri ending á körunum vegna betri meðhöndlunar, eru lykilatriði í hönnun og smíði vélarinnar. Flestir íhlutir tækisins eru úr AISI 304 ryðfríu stáli og öðrum efnum sem eru samþykkt við meðhöndlun á ílátum fyrir matvælaiðnað.

Eiginleikar

Stærð og þyngd
Utanmál   (LxBxH) Þyngd Flutningur
1900 x 2400 x 2400  mm 800 kg Passar í 20 feta gám
Afl- og vatnsþörf
Fæðispenna Loftnotkun Mótorar
3 x 400 volt + N  AC 50 Hz 10 ltr á mínútu af lofti við 6-8 bar 3,0 KW í lyftingu
10 Amp   1,1 kW í bandi