Persónuverndarstefna

Hvernig Ístækni ehf. meðhöndlar persónuupplýsingar í tengslum við umsóknir um störf.

1. Ábyrgðaraðili

Ístækni ehf., Sindragata 7, 400 Ísafjörður, er ábyrgðaraðili meðferðar persónuupplýsinga sem safnað er í gegnum þessa vefsíðu. Hægt er að hafa samband við okkur í síma +354 450 6000 eða á netfangið istaekni@istaekni.com.

2. Hvaða upplýsingum er safnað?

Við umsókn um starf í gegnum vefinn er eftirfarandi gögnum safnað:

  • Fullt nafn
  • Kennitala
  • Netfang
  • Símanúmer
  • Ferilskrá (skjal)

3. Tilgangur og lagalegur grundvöllur

Upplýsingarnar eru eingöngu notaðar til að vinna úr og meta umsókn þína um starf hjá Ístækni. Meðferðin byggist á samþykki þínu sem þú veitir með því að senda inn umsóknina, sbr. a-lið 1. mgr. 6. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar (ESB) 2016/679 (GDPR) og lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

4. Geymsla og eyðing

Umsóknin er send til okkar með tölvupósti. Hún er ekki geymd í gagnagrunni og engum slíkum er viðhaldið um umsækjendur á vefnum. Tölvupóstur með umsókn og ferilskrá er geymdur í póstholfi okkar í allt að 6 mánuði, en þá er honum eytt nema um sé að ræða ráðningu eða frekara samþykki umsækjanda.

5. Vinnsluaðilar og öryggi

Vefurinn er hýstur hjá Cloudflare, Inc. sem sinnir sendingu umsókna sem vinnsluaðili fyrir okkar hönd. Gögn eru send dulrituð (TLS) og ekki afhent þriðjum aðilum í öðrum tilgangi.

6. Réttindi þín

Þú hefur hverju sinni rétt á að:

  • fá aðgang að þeim persónuupplýsingum sem við höfum um þig,
  • krefjast leiðréttingar eða eyðingar upplýsinga,
  • draga samþykki þitt til baka,
  • andmæla vinnslu upplýsinganna og krefjast takmörkunar.

Til að nýta réttindi þín, eða ef þú hefur spurningar um meðferð umsóknargagna, hafðu samband við okkur á gog@istaekni.com.

7. Kvörtun til eftirlitsstofnunar

Ef þú telur að meðferð persónuupplýsinga þinna brjóti í bága við lög getur þú lagt fram kvörtun hjá Persónuvernd, Rauðarárstíg 10, 105 Reykjavík, www.personuvernd.is.

8. Breytingar

Þessari stefnu getur verið breytt og verður nýja útgáfan birt á þessari síðu. Stefna þessi var síðast uppfærð í september 2026.